Raðmorðingi í San Fransisco ögrar lögreglunni með bréfum og dulmálsskilaboðum. Fylgst er með rannsóknarlögreglumönnum og fréttamönnum í þessari mynd sem er lauslega byggð á sannri sögu frá áttunda áratug síðustu aldar. Ákaft er leitað að morðingjanum og menn fá sífellt meiri þráhyggju yfir málinu. Myndin er byggð á bók Robert Graysmith og í myndinni er sjónum beint sérstaklega að lífi og störfum lögreglumannanna og fréttamannanna. Robert Graysmith er skomyndateiknari sem vinnur fyrir dagblaðið The San Fransisco Chronicle. Óvenjuleg nálgun hans fer í taugarnar á Paul Avery, fréttamanni sem lætur áfengisdrykkju hafa skaðleg áhrif á starf sitt. Þeir tveir verða vinir og tengjast í gegnum sameiginlegt áhugamál; Zodiak morðingjann. Graysmith verður sífellt helteknari af málinu, en líf Avery hringsnýst meira og meira inn í áfengisvímu. Eftirgrennslan Graysmith leiðir hann inn á slóð David Toschi, rannsóknarlögreglumanns sem hefur hingað til ekki náð að leysa málið; Sherwood Morrill, rithandarsérfræðings; Linda del Buono, fanga sem þekkti eitt af fórnarlömbum Zodiak morðingjans; og fleiri. Atvinna Graysmith, eiginkona og börn, lenda öll í öðru sæti þegar Graysmith verður sífellt ákveðnari í að ná morðingjanum.
Engar sýningar fundust
