Myndin fjallar um fimm systur í úthverfi Detroit árið 1974 og dularfulla tilveru þeirra. Myndin er sögð af strákunum í nágrenninu sem dáðu þær og dýrkuðu og hittast 20 árum síðar til að reyna að leysa gátuna um Lisbon systurnar, sem voru aldar upp við mikinn aga heima fyrir. Þetta er saga um einmanaleik, einangrun og það hvernig umhverfið horfði sljólega á þær verða að engu.