
Soylent Green
Árið er 2022 og Jörðin er orðin yfirfull af fólki og algjörlega menguð. Auðlindir hafa verið þurrausnar og Soylent Industries fyrirtækið sér um að útvega fólki næringu, sem það býr til úr svifi úr sjónum. Þegar stjórnarmaður í Soylent, William R. Simonson, er myrtur af innbrotsþjófi, að því er virðist, í Chelsea Towers West, þar sem hann býr, þá er Thorn rannsóknarlögreglumaður fenginn í málið ásamt félaga sínum Solomon "Sol" Roth. Thorn kemur í flotta íbúðina og hittir lífvörð Simonson Tab Fielding og "húsgagnið" ( kona sem er leigð með íbúðinni ) Shirl, og rannsóknarlögreglumennirnir líta svo á að Simonson hafi verið tekinn af lífi, en ekki myrtur. Ennfremur þá finna þeir að valdamiklir menn vilja láta rannsóknina niður falla. En Thorn heldur áfram og kemst að undarlegum leyndarmálum um innihaldið í vörunni sem Soylent Green framleiðir.