Til baka

Póstkort

2025 · 19 mín · Heimildarmynd, Stuttmynd

Kristinn gengur Jakobsveginn í fyrsta sinn og ritar daglega póstkort til eiginkonu sinnar, Stellu, samtals 46 póstkort - eitt póstkort fyrir hvert ár sem þau hafa þekkst. Hvert póstkort lýsir minningu Kristins frá sérhverju ári í þeirra hjónabandi. Kímin frásögn af ferðalaginu um Jakobsveginn blandast við hjartnæm skrifin í póstkortunum. Stella er með alzheimer sjúkdóminn og hrakar næstu árin þar til hún fellur frá daginn eftir 51 árs brúðkaupsafmæli þeirra hjóna. Hjónabandið var farsælt og ástarsagan falleg. Er möguleiki að elska á ný eftir 51 ár með sömu konunni? Nokkrum mánuðum eftir andlát Stellu heldur Kristinn enn á ný í ferð á Jakobsveginn og skrifar síðasta póstkortið.

1 sýning