Full Steam Ahead
Hvernig er að vera kona í atvinnugrein sem hefur lengi verið mótuð af körlum? Og hvað gerist þegar konurnar sem ruddu brautina fá loksins tækifæri til að segja sína sögu? HÁHITASVÆÐI er ný íslensk heimildarmynd eftir Grétu Ólafsdóttur og Susan Muska sem veitir einstaka innsýn í líf og störf kvenna í jarðhita geiranum á Íslandi, í Kenía og Japan. Konur af ólíkum kynslóðum segja frá sigrum sínum, baráttu og áskorunum í karllægum heimi. Þær ræða meðal annars kynferðislega áreitni, mismunun, ójafnan aðgang að tækifærum og þær ósýnilegu hindranir sem konur mæta enn á vinnumarkaði. Myndin dregur jafnframt fram merkilega sögu brautryðjenda kvenna sem áttu þátt í að byggja upp jarðhita iðnaðinn, en framlag þeirra hefur ekki alltaf fengið verðskuldaða athygli.
Engar sýningar fundust
Engar sýningar fundust fyrir þetta val.
