Fuglar (og menn)

2026 · 83 mín · Heimildarmynd, Íslenskt

Í Loðmundarfirði er sérstætt bæjarfélag í umsjá hjónanna Ólafs og Jóhönnu. Bæjarbúar eru æðarfuglar sem leggja í langt ferðalag til þess eins að ala upp afkvæmi sín í þessari öruggu náttúruparadís. Það skiptast á skin og skúrir í lífi fuglanna en samlífið með hjónunum er einstakt fyrir alla aðila.