Myndin er gerð eftir leikriti William Shakespeare, "TheTaming of the Screw" eða Skassið tamið. Hún hefst þegar Cameron, sem er nýstúdent við Padua High, situr í skrifstofu hins sérvitra leiðbeinanda fröken Perky. Þá fer Michael, sem á eftir að verða besti vinur hans, með hann í kynnisferð um skólann. Í þeirri ferð sér Cameron fyrst Bianca Stratford, fallega stelpu á öðru ári sem á við eitt vandamál að stríða: hún má ekki fara á stefnumót. Skassið systir hennar, Katarina, sem er á lokaári í skólanum, má heldur ekki fara á stefnumót. Hún elskar indý rokktónlist og feministabókmenntir og þolir ekki hlýðni og undirgefni. En faðir þeirra systra breytir þessari húsreglu: núna, þá má Binanca fara á stefnumót .. en svo lengi sem Kate hefur einhvern til að fara á stefnumót með líka. Núna, til að Cameron geti komist á stefnumót með Bianca, þá þarf hann að finna einhvern til að fara út með Kat. Hann leitar hjálpar hjá hinni snoppurfríðu strákafyrirsætu Joey Donner, og platar hann til að hugsa á þann veg að "hann" muni fá að fara með Binanca á stefnumót ef hann borgar einhverjum til að fara út með Kat. Hann velur Patrick Verona, óþekkan strák með dularfullt orðspor - sumir segja að hann hafi eitt sinn borðar lifandi gæs, og aðrir segja að hann hafi kveikt í lögregluþjóni, og enn aðrir segja að hann hafi eitt sinn unnið fyrir sér í klámmyndum. Mun Patrick ná að sigra hjarta Kat? Mun Cameron ná í Bianca? Eða mun allt fara úrskeiðis ....?
Engar sýningar fundust
